Jarðböðin við Mývatn taka á sig nýja mynd

Umfangsmiklar framkvæmdir hafa staðið yfir við Jarðböðin við Mývatn þar sem ný aðstaða, stækkað lón og fjölbreyttari upplifun bíður nú gesta

Miklar breytingar hafa átt sér stað við Jarðböðin við Mývatn, þar sem er verið að taka í notkun nýja og glæsilega aðstöðu sem mun opna gestum nýja leið til að upplifa jarðhitann, náttúruna og baðhefðina við Mývatn.
Framkvæmdirnar hafa verið umfangsmiklar og tekið sinn tíma, en gengið vel. Markmiðið hefur frá upphafi verið skýrt: að byggja upp nútímalega, hlýlega og vandaða aðstöðu sem heldur í sérstöðu staðarins og styrkir tenginguna við landslagið í kring.
Nýja byggingin er mótuð í nánum tengslum við umhverfið. Jarðvegur úr framkvæmdinni hefur meðal annars verið nýttur í þakkanta, þakið, klæðningar innan- og utanhúss og í gólfefni. Þar sem það hefur verið mögulegt er byggingin löguð að hraunveggjum og náttúrulegum formum á svæðinu, til dæmis á leið gesta að búningsklefum og í sérhönnuðum rýmum innan hússins.
„Okkur langaði ekki að byggja eitthvað sem stæði fyrir utan landslagið. Við vildum að nýja aðstaðan myndi vaxa upp úr umhverfinu og endurspegla jörðina, gufuna, vatnið og hraunið sem gera Mývatnssveit svona einstaka,“ segir Guðmund Þór Birgisson, framkvæmdastjóri.
Ein stærsta breytingin er sú að gestir geta nú valið á milli þriggja mismunandi aðgangsleiða: Kjarna, Kviku og Kyrrðar. Þannig verður auðveldara fyrir gesti að velja upplifun sem hentar þeirra ferðalagi, hvort sem markmiðið er einföld og afslöppuð ferð í lónið, ríkari upplifun með aukinni þjónustu eða róleg og persónuleg heimsókn.
Lónið sjálft fær einnig nýtt hlutverk í upplifuninni. Bláa, steinefnaríka jarðhitavatnið verður áfram í hjarta staðarins, en ný viðbót við lónið er mótuð í kringum gjá og sækir náttúrulegan innblástur frá nærumhverfinu, í anda Grjótagjár og Stórugjár. Gestir ganga í gegnum gjár, hellar tengja saman rými í lóninu og nýir pottar bjóða upp á víðáttumikið útsýni yfir Mývatnssveit.
Þá verður nýr lónsbar hluti af upplifuninni og ný gufuaðstaða í nokkurs konar gufuhelli, verður ein af stærstu nýjungunum. Þar er byggt áfram á aldagamalli hefð heimamanna, þar sem jarðgufan hefur verið nýtt til baða og slökunar í margar kynslóðir.
„Þetta er mikil breyting fyrir okkur og gestina okkar. Við erum að halda í það sem fólk hefur alltaf elskað við staðinn, en bæta við rými, þægindum og nýjum upplifunum sem gera heimsóknina enn eftirminnilegri,“ segir Guðmund Þór Birgisson, framkvæmdastjóri.
Nýja aðstaðan mun einnig bjóða upp á nudd sem er ný þjónusta hjá Jarðböðunum. Gestir geta bókað nudd óháð því hvort þeir fara í lónið eða ekki, sem opnar á enn fjölbreyttari leiðir til að njóta slökunar og vellíðunar við Mývatn.
Með breytingunum verða Jarðböðin við Mývatn ekki aðeins stærri og rúmbetri, heldur heildstæðari áfangastaður fyrir ferðamenn og heimafólk sem vill upplifa jarðhita, náttúru og íslenska baðmenningu á einstökum stað.




