Opið fyrir umsóknir 2026
Ragnhildur Holm • February 3, 2026

Lausar stöður í Jarðböðunum

Með vorinu opnum við nýja og glæsilega byggingu og aukum við fjölbreytni í þjónustu
Við leitum því að frábærum einstaklingum á eftirfarandi starfsstöðvar fyrir sumarið, með möguleika á áframhaldandi starfi:
-Baðvakt
-Bistro
-Eldhús
-Þvottur/þrif
-Nudd
-Einkaklefi
Jákvæðni, góð mannleg samskipti, lipurð í starfi og góð tungumálakunnátta er nauðsyn. Reynsla sem nýtist í starfi er mikill kostur. Um vaktavinnu er að ræða og aldurstakmark er 18 ár. Leiguhúsnæði er í boði.
Viltu vita meira eða senda inn umsókn? Sendu póst á netfangið ragnhildur@jardbodin.is




